Einar Bjarnason fæddist 21. nóvember, 1838 í N. Múlasýslu. Dáinn 26. apríl, 1921 í Vallabyggð í Saskatchewan.
Maki: 1) 28. september, 1867 Ólöf Einarsdóttir f. 1823 í S. Múlasýslu, d. 1885 í Pembina í N. Dakota 2) Ingibjörg Teitsdóttir f. 17. desember, 1852, d. 18. maí, 1940 á Betel í Gimli.
Börn: Með Ingibjörgu: 1. Teitur f. í Pembina 1886, d. í Saskatchewan 16. apríl, 1924 2. Rósa 3. Ólöf 4. Einar 5. Oddur Stefán f. 1891 í Pembina. Ólöf var ekkja eftir Þorkel Árnason (Scheving) og átti með honum börn 1. Árni f. 22. júlí, 1849 2. Einar f. 17. október, 1852 3. Sigþrúður f. 31. júlí, 1854 4. Runólfur d. 1860 5. Stefán f. 10. maí, 1858, d. 28. nóvember, 1877. Hvílir í ómerktri gröf í Breiðuvíkur kirkjugarði í Hnausabyggð 6. Guðrún f. 7. júní, 1860, d. í júlí, 1860 7. Guðrún f. 26. júní, 1862 8. Steinunn Björg f. 31. júlí, 1865.
Einar og Ólöf fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Breiðuvík í Hnausabyggð. Þar hét Bjarkastaðir og var í miðri Hnausabyggð. Þar messaði séra Jón Bjarnason í sinni fyrstu heimsókn í unga byggð 28. nóvember, 1877 og oftar seinna meðan á dvöl hans stóð í Nýja Íslandi. Þau fluttu til Winnipeg árið 1879 og þaðan vorið 1880 til Pembina í N. Dakota. Þar kvæntist Einar Ingibjörgu og bjuggu þau þar til ársins 1902 en þá fluttu þau í svonefnda Vallabyggð nærri Gerald í Saskatchewan.
