ID: 14885
Fæðingarár : 1877

Guðrún Einarsdóttir Mynd VÍÆ II
Guðrún Einarsdóttir fæddist í S. Múlasýslu 18. mars, 1877.
Maki: 22. október, 1894 Finnbogi Guðmundsson fæddist í S. Múlasýslu 17. október, 1870, d. í Vatnabyggð 4. febrúar, 1958 í Vatnabyggð.
Börn: 1. Guðmundur f. 2. nóvember, 1896, d. 1. janúar, 1950 í Winnipeg 2. Einar f. 1. október, 1898 3. Helga f. 6. ágúst, 1903 4. Bogi f. 1911 5. Stanley f. 26. janúar, 1916 6. Halldór f. 29. október, 1920.
Finnbogi flutti til Vesturheims árið 1887, með foreldrum sínum, Guðmundi Finnbogasyni og Guðlaugu Eiríksdóttur. Guðrún fór sama ár með sínum foreldrum, Einari Eiríkssyni og Helgu Marteinsdóttur. Finnbogi og Guðrún bjuggu fyrst í Akrabyggð en frá 1917 í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þar bjuggu þau nálægt Mozart.
