ID: 15493
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1913

Bjarni Stefánsson Mynd Almanak 1918

Elín Indíana Eiríksdóttir Mynd Almanak 1918
Bjarni Stefánsson fæddist í Húnavatnssýslu 1. október, 1854. Dáinn í Saskatchewan 7. janúar, 1913. Í sumum heimildum skráður Stephanson
Maki: Elín Indíana Eiríksdóttir f. í Húnavatnssýslu 3. september, 1850, d. 1934
Börn: 1. Stefán Danival f. 1880 2. Eiríkur 3. Engilráð 4. Anna Jakobína f. 24. júlí, 1887 5. Elí Bjarni 6. Karólína
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og bjuggu þar til ársins 1886. Námu þá land í Þingvallabyggð í Saskatchewan og bjuggu þar í 12 ár. Þá fluttu þau austur til Manitoba og námu land í Strathclair ásam fáeinum öðrum Íslendingum. Þar voru þau næstu fjórtán árin en fóru þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land nærri Elfros.
