Ásmundur Gissurarson

ID: 15627
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla

Ásmundur Gissurarson fæddist 7. febrúar, 1872 í Gullbringusýslu.

Ókvæntur og barnlaus

Hann fór vestur til Spanish Fork í Utah árið 1883. Segir heimild í Utah að hann hafi verið samferða “Kristínu Jónsdóttur“ einhvern áfanga ferðarinnar með gufuskipinu Wisconson en það hafði verið byggt árið 1881 og sigldi á vötnunum stóru í Bandaríkjunum. Sama heimild segir að Þorsteinn Jónsson hafi sagt í bréfi frá Spanish Fork árið 1883 að Ásmundur væri tíður gestur á heimili hans á sunnudögum.(IGtU, Ashby 2008)