
Þórður Diðriksson og Helga Jónsdóttir Mynd Almanak
Þórður Diðriksson fæddist 26. mars, 1828 í Rangárvallasýslu. Dáinn 9. september, 1894 í Utah. Sum gögn í Utah skrá nafn hans Thomas Didriksen, önnur Thordur Dedrickson.
Maki: 1. 2. janúar, 1858 Helga Jónsdóttir f. 12. júlí, 1814 í Rangárvallasýslu. 2. 17. júlí, 1866 Maren Jacobsen f. 31. maí, 1839 í Danmörku 3. 11. nóvember, 1880 Rannveig Jónsdóttir f. 17. ágúst, 1851 í V. Skaftafellssýslu.
Börn: Með Maren: 1. Mary Harriet f. 12. júní, 1867, d. 16. september, 1868 2. Sarah f. 29. nóvember, 1868, d. 23. september, 1869 3. Theodore Dahl f. 1. ágúst, 1871, d. 25. apríl, 1940 4. Albert f. 30. maí, 1873, d. 21. maí, 1876 5. John f. 28. mars, 1875, d. 26. maí, 1876 6. Inger Grace f. 27. júlí, 1877, d. 1. mars, 1942. Með Rannveigu 1. Helga Margaret f. 13.janúar, 1884, d. 27. febrúar, 1914 2. Theodore Guðmundur f. 5. júlí, 1885, d. 21. febrúar, 1953 3. Dedrik John f. 13. ágúst, 1887, d. 3. ágúst, 1940. Engin börn með Helgu.
Þórður fór frá Vestmannaeyjum til Kaupmannahafnar árið 1855 og sama ár til Englands og áfram vestur um haf. Hann kom til New York 15. febrúar, 1856 og til Salt Lake City um miðjan júli sama ár.
