
Jón Eyvindsson Mynd FVTV

Vigdís Jónsdóttir Mynd FVTV
Jón Eyvindsson fæddist í Rangárvallasýslu 14. júní, 1845. Dáinn í Alberta, Kanada 3. október, 1917. John Evanson vestra.
Maki: 20. október, 1881 Vigdís Jónsdóttir f. 3. júní, 1845 í Vestmannaeyjum.
Börn: John Evan f. 18. október, 1883, d. 7. júní, 1942 í Alberta.
Jón flutti vestur til Spanish Fork í Utah 17. maí, 1878. Hann sneri aftur, trúboði, til Vestmannaeyja haustið 1879 og vann þar við trúboð til ársins 1881. Hann sigldi vestur um haf 16. júlí, 1881 og var Ingveldur Árnadóttir honum samferða. Hann kvæntist Vigdísi síðar sama ár en hún var móðir Ingveldar, ekkja í Utah, þangað komin árið 1880. Jón og Vigdís bjuggu í Spanish Fork og seinna í Scofield í Utah en líkt og ótal landar þeirra þar um slóðir fluttu þau árið 1903 til Alberta í Kanada. Þar settust þau að í Taber.
