Fanney Teitsdóttir

ID: 16657
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1888

Fanney Teitsdóttir Mynd VÍÆ I

Fanney Teitsdóttir fæddist í Winnipeg 14. september, 1888.

Maki: 22. ágúst, 1907 Stefán Eymundsson f. í A. Skaftafellssýslu 8. september, 1884.

Börn: 1. Júlíus Thomas f. 3. júní, 1908 2. Evelyn Marguerite f. 6. maí, 1911 3. Eymundína Halldóra f. 9. október, 1914 4. Emily Adelaide f. 4. febrúar, 1916 5. Pearl Lily f. 28. júní, 1918.

Fanney var dóttir Teits Ingimundarsonar og Júlíönu Guðmundsdóttur sem vestur fluttu árið 1887. Foreldrar Stefáns voru Eymundur Jónsson og Halldóra Stefánsdóttir, sem vestur fluttu 1903, Stefán fór vestur árið áður og bjó Winnipeg þar til hann flutti vestur til Vancouver árið 1941. Stefán stundaði húsasmíði um skeið, vann svo við bíla- og rafmagnsviðgerðir. Hann var forseti Íslendingadagsnefndar í mörg ár og var alla tíð ötull félagi í Þjóðræknisfélaginu. Var forseti deildar þess í Vancouver í nokkur ár.