Sigurður Victor Stefánsson fæddist í Hnausabyggð í Nýja Íslandi 23. janúar, 1895
Maki: 15. júlí, 1919 Kristín Helga Grace Bjarnadóttir f. 12. nóvember, 1897 í Hnausum í Manitoba.
Börn: 1. Stefán f. 19. nóvember, 1921 2. Helga Norma f. 4. mars, 1923 3. Valgerður Elisa f. 10. febrúar, 1925 4. Jóhannes Victor f. 6. júní, 1927 5. Gladys Kristrún f. 8. maí, 1930 6. Lillian Lois f. 31. desember, 1931 7. Lárus Ralph f. 8. apríl, 1936 8. Gordon Bjarni f. 14. janúar, 1938.
Sigurður var sonur hjónanna Stefáns Sigurðssonar, kaupmanns í Hnausum og Valgerðar Jónsdóttur. Sigurður gekk í miðskóla að Hnausum og fór ungur að stunda fiskveiðar í Winnipegvatni og var seinna að auki með fiskverslun í Riverton. Hann sat í mörg ár í sveitarstjórn í Bifröst, varð svo bæjarstjóri í Riverton árið 1951. Kristín var dóttir Bjarna Marteinssonar frá Stafafelli í Lóni og Helgu Guðmundsdóttur frá Flögu í Breiðdal.
