ID: 17785
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1906
Fæðingarstaður : Manitoba

Unnur S Ísleifsdóttir Mynd Dm
Unnur Sigurlaug Ísleifsdóttir fæddist 30. ágúst, 1906 í Manitoba.
Maki: 26. október, 1926 Hjörtur Jón Jósefsson fæddist 12. nóvember, 1894 í Dalasýslu. Josephson vestra.
Börn: 1. Helen f. 23. maí, 1927 2. Ethel f. 8. mars, 1930 3. Howard f. 3. september, 1933 4. Dorland f. 22. mars, 1936 5. Yvonne f. 19. júní, 1942.
Unnur var dóttir Ísleifs Guðjónssonar og Guðleifar Jónsdóttur sem vestur fluttu árið 1884 og settust að í Álftavatns- og Grunnavatnsbyggðum í Manitoba. Hjörtur lærði skósmíði í Reykjavík og vann við það fáein ár áður en hann flutti vestur til Winnipeg árið 1912. Þaðan lá leið hans í Lundarbyggð þar sem hann stundaði landbúnað til ársins 1945. Flutti þá til Winnipeg og vann við skósmíðar.
