ID: 17977
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1883
Dánarár : 1913
Sigrún Ólafsdóttir fæddist í Minneota í Minnesota 1883. Dáin í N. Dakota 6. apríl, 1913.
Maki: 14. júlí 1905 Kristinn Kristinsson fæddist 28. september, 1880 í Garðarbyggð í N. Dakota. Dáinn í Iowa 27. júní, 1961. Rev. Kristinn K. Olafsson vestra.
Börn: 1. Erlingur Kristinn f. 6. mars, 1906 2. Marino Ólafur f. 28. desember, 1907 3. Páll Theodore f. 30. apríl, 1911, allir fæddir í N. Dakota.
Sigrún var dóttir Guðjóns Arngrímssonar frá Búastöðum í Vopnafirði og Sigurborgar Sigurðardóttur á Egilsstöðum í Vopnafirði. Fjölskyldan notaði föðurnafnið Anderson í Minnesota. Kristinn var sonur Kristins Ólafssonar og Katrínar Ólafsdóttur sem vestur fluttu til Wisconsin árið 1873. Kristinn ólst upp í N. Dakota, gekk menntaveginn og gerðist prestur.
