
Jónína Jóelsdóttir og Jón Á Reykdal Mynd RbQ
Jón Ásgrímur Jóhannsson fæddist í Argylebyggð í Manitoba árið 1885. Dáinn í Saskatchewan 7. mars, 1935. Reykdal í Vesturheimi.
Maki: 12. mars, 1918 Jónína Kristjana Jóelsdóttir f. S. Þingeyjarsýslu 4. september, 1896.
Börn: 1. Jóhann Egill f. 16. júlí, 1918 2. Björn f. 13. ágúst, 1919 3. Júlíus Gísli f. 13. maí, 1924 4. Guðrún Kristbjörg f. 7. mars, 1928 5. Jakobína Kristín f. 11. mars, 1929
Jón ólst upp í Argylebyggðinni en flutti árið 1912, ásamt föður sínum, í Vatnabyggð í Saskatchewan og keypti þar land af Hermanni Ísfeld í Kandahar/Dafoe byggð. Hann nam annað land í sömu byggð. Jónína kom vestur með sínum foreldrum árið 1900 sem bjuggu í Argylebyggð í næstu tíu árin. Þaðan lá leiðin í Silver Bay í Siglunesbyggð við norðanvert Manitobavatn.
