Jón H Finnbogason

ID: 18358
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1899
Fæðingarstaður : Grunnavatnsbyggð
Dánarár : 1945

Jón Hannes Finnbogason Mynd WtW

Jón Hannes Finnbogason fæddist 13. desember, 1899 í Grunnavatnsbyggð í Manitoba. John Hannes Thorgilsson vestra.

Maki: 3. mars, 1924 Anna Ingibjörg Pálsdóttir f. 17. september, 1901 í Lundarbyggð.

Börn: 1. Thelma Lillian f. 10. október, 1924 2. Páll (Paul) Finnbogi f. 14. febrúar, 1927 3. John Albert f. 25. febrúar, 1929 4. Anna Sigríður f. 11. október, 1931 5. Óskar f. 22. júní, 1933.

Jón Hannes var sonur Þorgils Finnbogasonar, sem vestur fór með foreldrum sónum árið 1882. Móðir Jóns var Málfríður Hallgerður Jóndóttir. Þorgils og Málfríður settust að í Vestfold í  Grunnavatnsbyggð og þar ólst Jón upp. Anna var dóttir Páls Guðmundssonar og Sigríðar Eiríksdóttur landnema í Lundarbyggð. Jón og Anna keyptu land föður Önnu árið 1925 en hann var þá hættur búskap. Þar bjuggu þau alla tíð og var Jón stórbóndi, stundaði nautgriparækt og ræktaði allt sitt korn sjálfur.