Guðveig Jónsdóttir

ID: 3310
Fæðingarár : 1858
Dánarár : 1946

Guðveig Jónsdóttir fæddist 16. maí, 1858 í Mýrasýslu. Dáin 24. september, 1946 á Betel í Gimli.

Maki: 1) 10. desember, 1892 Bjarni Árnason (Anderson vestra) f. 25. desember, 1859, d. í Winnipeg 7. nóvember, 1897 2) 8. júní, 1900 Egill Egilsson f. 30. mars, 1862 í Árnessýslu, d. 4. mars, 1954 í Gimli í Nýja Íslandi.

Börn: Með Bjarna 1. Anna f. 1893, d. 1895 2. Haraldur Þorbergur (Harold Thorbergur) f. 26. febrúar, 1894. Með Agli : 1. Bjarni Ásgeir f. 11. febrúar, 1901, d. 27. febrúar, 1965.

Guðveig fór vestur árið 1889 með dreng, frænda sinn, Jón Þorvarðarson (J.J.Swanson vestra).  Hún giftist Bjarna Árnasyni vestra. Egill fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1897. Þau bjuggu í Winnipeg til vors 1917 en þá keypti Egill tvö lönd á Big Point veð Manitobavatn sem Ólafur Hannesson hafði átt. Þau bjuggu þar til ársins 1924 en fluttu þá til Gimli.