
Ingiríður Guðmundsdóttir Mynd VÍÆ IV
Ingiríður Guðmundsdóttir fæddist 20. október, 1878 í Mýrasýslu. Dáin í Manitoba 26. apríl, 1951.
Maki: Björn Björnsson f. 19. júní, 1870 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Winnipeg í Manitoba 13. maí, 1938. Rev. Bjorn Bjornsson vestra.
Börn: 1. Ralph Passavant f. 8. janúar, 1911, d. 1953 2. María Sigurbjörg f. 13. mars, 1914 3. Lillian Guðný f. 6. apríl, 1916.
Ingiríður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með foreldrum sínum, Guðmundi Jónssyni og Guðnýju Símonardóttur. Þau settust að í Mikley en Ingiríður varð eftir í fóstri í Winnipeg þar sem hún gekk í skóla. Varð kennari. Björn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Birni Jónssyni og Þorbjörgu Björnsdóttur. Björn gekk menntaveginn og varð prestur. Hann þjónaði í íslensku byggðinni í Minnesota frá 1894 til ársins 1914 og var prestur í Fyrstu Lútersku kirkjunni í Winnipeg frá 1914 til 1938.
