Jón Jónsson

ID: 4003
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1901

Jón Jónsson Freeman

Helga Jakobína Ólafsdóttir

Jón Jónsson fæddist 21. febrúar, 1857 í Dalasýslu. Dáinn í Akrabyggð í N. Dakota 13. águst, 1901. Freeman vestra

Maki: 1883 Helga Jakobína Ólafsdóttir f. í Mýrasýslu árið 1856, d. 1924 í Upham í N. Dakota.

Börn: 1. Sigríður Lára f. 2. desember, 1883 2. Björg Vilhelmína f. 8. nóvember, 1884, d. 15. janúar, 1939 3. Ólafur f. 1888 d. 20. mars, 1951 4. Jón Kristján

Jón fór vestur með móður sinni, stjúpa og systkinum árið 1874 og fóru þau til Milwaukee í Wisconsin.  Virðist hafa verið þar um slóðir út áratuginn en nemur svo land í Akrabyggð í N. Dakota þar sem hann bjó til dauðadags. Helga Jakobína fór einsömul vestur árið 1882 og fór þaðan í Akrabyggð í N. Dakota. Þegar Jón lést hætti hún búskap og flutti til Upham þar sem Sigríður dóttir hennar bjó.