Jón Jónsson

ID: 4112
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1904

Jón Jónsson, Guðbjörg Guðbrandsdóttir og Sigþrúður Kristín Mynd Dalamenn lll

Jón Jónsson fæddist 7. ágúst, 1856 í Dalasýslu. Dáinn í Winnipeg í Manitoba 30. apríl, 1904.

Maki: Guðbjörg Guðbrandsdóttir f. 22. maí, 1863, d. um 1960.

Börn: 1. Katrín, dó rétt ársgömul. 2. Sigþrúður Kristín Gísladóttir, fósturdóttir d. 18. ágúst, 1906 3. Karl Hansson, bróðursonur Guðbjargar.

Þau fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1883. Bjuggu þar í tvö ár en námu þá land í Argylebyggð árið 1885. Fluttu þaðan árið 1890 í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem þau bjuggu næstu þrjú árin hjá Guðbrandi, bróður Guðbjargar. Fluttu þá aftur til Winnipeg og bjuggu þar. Vann Jón þar við húsbyggingar. Lést í slysi þar í borg. Guðbjörg flutti þá vestur að Kyrrahafi og bjó síðast í Blaine í Washingtonríki.