Þorgils Jóhannesson

ID: 4142
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1944

Þorgils Jóhannesson fæddist 13. maí, 1878 í Dalasýslu. Dáinn í Winnipeg 16. febrúar, 1944. Johnson vestra.

Maki: Guðrún Rósa Jóhannesdóttir f. 11. ágúst, 1884 í Hallson í N. Dakota, dáin í Winnipeg 25. júlí, 1958.

Börn: 1. Anna Rósbjörg f. 1906, d. 1978 2. Áróra (Aurora) Kristjana f. 1907, d. 2001 3. Earnest Alfreð f. 1910, d. 1980 4. Florence Guðrún f. 1913, d. 2003 5. María Guðbjörg f. 1916, d. 2001 6. Eleanore Doreen f. 1922, d. 2011 7. Brian Roy f. 1924, d. 2009.

Þorgils flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Jóhannesi Jónssyni og Guðrúnu Andrésdóttur. Þau voru fyrst í Nýja Íslandi en fluttu svo 1888 til Winnipeg og þar bjó Þorgils alla tíð. Hann vann hjá C.P.R. járnbrautafélaginu. Guðrún Rósa var dóttir Jóhannesar Halldórssonar og Önnu Sigurðardóttur sem vestur fluttu árið 1878 og settust að í N. Dakota.