
Óli og Lára sitja. Standandi Dorothy, Luella, María og Anna Mynd RbQ
Óli Jóhannesson fæddist 12. júlí, 1880 í Parry Sound í Ontario í Kanada. Dáinn 27. júní, 1957 í Wynyard. Skrifaði sig Oli J. Halldorson vestra
Maki: 28. janúar, 1912 Lára Lárusdóttur f. 15. október, 1888 í Pembina í N. Dakota, d. 20. júní, 1959.
Börn: 1. Anna Hólmfríður 2. Luella 3. Dorothy 4. Þorbjörg María.
Óli var sonur Jóhannesar Halldórssonar og Önnu Hólmfríðar Sigurðardóttur úr Eyjafjarðarsýslu sem fóru vestur til Ontario árið 1878. Hann ólst upp hjá þeim í Hallsonbyggð í N. Dakota og fór með föður sínum í Roseaubyggð í Minnesota árið 1895 og þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1907. Þar nam Óli land. Lára var dóttir Lárusar Goðmundssonar Goodman og Ragnheiðar Kristjánsdóttur sem vestur fluttu úr Skagafirði árið 1883.
