
Filippus og Þórdís sitja, Vilborg stendur. Börnin eru Gilbert, Steinþóra og Pauline. Mynd WtW

Laufey og Þorsteinn sitja. Pauline og Valtýr standa. Mynd WtW
Filippus Jónsson fæddist í Rangárvallasýslu árið 1864. Dáinn í Lundarbyggð 1937. Philip Johnson vestra.
Maki: 1896 í Winnipeg Þórdís Þorsteinsdóttir f. í Borgarfjarðarsýslu árið 1869, d. 1948 í Winnipeg.
Börn: 1. Steinþóra f. 1897 2. Gilbert f. 1899 3. Pauline f. 1901 4. Valtýr (Walter) f. 1903 5. Stefán f. 1907, d. 1908 6. Þorsteinn (Thorstein) f. 1907 7. Laufey f. 1909.
Filippus fór vestur til Winnipeg í Manitoba fyrir 1890 og bjó þar fyrstu árin. Þórdís fór vestur þangað árið 1894 en árið 1890 hafði systir hennar Vilborg flutt þangað vestur. Hún bjó alla tíð hjá systur sinni. Þau fluttu í Lundarbyggð árið 1903 og námu land nærri Otto. Bjuggu þar til ársins 1924 enþá fluttu þau á jörð nærri Lundar. Þegar Filippus féll frá þá flutti Þórdís til Lundar og seinna til Winnipeg þar sem börn hennar bjuggu.
