ID: 18906
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1949
Steinvör Lilja Guðmundsdóttir fæddist 10. apríl, 1853 í Húnavatnssýslu. Dáin í Hallson, N. Dakota 4. september, 1949.
Maki: 5. júní, 1885 Jón Einarsson f. í Hnappadalssýslu árið 1849, d. í Hallson, N. Dakota 5. maí, 1912. Hnappdal vestra.
Börn: 1. Hallur 2. Jón 3. Eggert 4. Einar 5. Ingiríður 6. Lilja. Önnur tvö áttu þau sem bæði dóu ung.
Jón fór vestur til Ontario í Kanada um haf með móður sinni og bróður og systur árið 1876. Þar var þá fyrir Einar Jónsson faðir hans. Þau fluttu austur í Markland í Nova Scotia og þaðan til N. Dakota árið 1881. Hann settist að í Beaulieubyggð vestur af Hallson. Steinvör flutti vestur til N. Dakota árið 1883.
