
Jóhanna með barnahópinn sinn Mynd Well Connected
Jóhanna Sigurfríð Sigurðardóttir fæddist 26. mars, 1875 í Dalasýslu.
Maki: Björn Sigvaldason fæddist í N. Múlasýslu 26. desember, 1874. Barney Freeman vestra.
Börn: 1. Sigurður f. 18. nóvember, 1897, d. 1916 í Frakklandi 2. Hólmfríður (Freda) 25. október, 1901 3. Geirfríður Benónína f. 10. ágúst, 1903 4. Marta (Martha) Kristbjörg f. 30. janúar, 1906 5. Jóhanna Birgitta f. 11. nóvember, 1907 6. Björn Kristjón f. 10. febrúar, 1910 7. Guðlaug f. 26. febrúar, 1912 8. Guðrún Erlendína (Ella) f. 18. október, 1914 9. María Kristín f. 13. maí, 1915 10. Björg Sigurrós f. 9. janúar, 1918. Öll fædd í Selkirk í Manitoba.
Björn flutti vestur með móður sinni, Sigríði Jónsdóttur árið 1879. Þau fóru til Nýja Íslands og þangað fór Jóhanna árið 1887 með sínum foreldrum, Sigurði Erlendssyni og Hólmfríði Steindórsdóttur. Björn vann við flutninga á Winnipegvatni og bjuggu þau lengstum í Selkirk.
