Jóhann Vigfússon

ID: 18873
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1950

Jóhann Arngrímur Vigfússon fæddist í N. Múlasýslu 5. apríl, 1862. Dáinn í Minneota í Minnesota 8. júlí, 1950. Josefson vestra.

Maki: 1) 29. nóvember, 1895 1. Þórdís Snorradóttir f. 24. ágúst, 1874, d. 27. febrúar, 1900 2) 26. maí, 1906 Guðný Sigbjörnsdóttir f. 1871, d. 3. maí, 1946.

Börn: Öll með Guðnýju 1. Þórdís Sigríður Elísabet f. 23. apríl 1907 2. Ísafold  Sigurbjörg f. 26. nóvember, 1908 3. Guðný Matthildur f. 1909, d. 29. desember, 1912 4.  Jóhanna Guðný Halldóra f. 12. október, 1910, d. 15. mars, 1915 5. Jónína Helga f. 2. október, 1912 6. Joseph Axel f. 5. mars, 1915 7. Leifur H. f. 29. maí, 1917.

Jóhann flutti vestur árið 1878 með frænda sínum og fóstra, Jósef Jósefssyni og bjó hjá honum í Minnesota þótt foreldrar hans, Vigfús Jósefsson og Sigurborg Hjálmarsdóttir færu vestur þangað sama ár. Bjó Vigfús í Limestone hreppi en Jósef nam land í Westerheim hreppi. Jóhann varð dugandi bóndi, efnaðist vel og sinnti samfélaginu á ýmsa vegu. Þórdís var dóttir Snorra Jónssonar úr Papey og konu hans, Kristbjargar Helgadóttur. Guðný var dóttir Sigbjörns Sigurðssonar og Steinunnar Magnúsdóttur.