Björn Stígsson

ID: 18985
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1885
Dánarár : 1954

Björn Stígsson fæddist í N. Dakota 29. maí, 1885. Dáinn í Los Angeles 7. október, 1954. Bjorn Thorvaldson vestra.

Maki: Guðný Margrét Friðriksdóttir f. 16. nóvember, 1884, d. 29. júlí, 1965 í Kaliforníu.

Börn: 1. Friðrik Björn f. 9. maí, 1911, d. 8. nóvember, 1927 2. Þórunn Ingibjörg f. 11. mars, 1913 3. Margrét Halldóra f. 1. október, 1914 4. Ruth Alice f. 15. ágúst, 1916 5. Albert Ólafur f. 2. mars, 19128, d. 1944 6. Pauline Guðrún f. 12. júlí, 1920 7. Valdimar Stígur f. 27. febrúar, 1924 8. Friðrika Elfreda f. 19. febrúar, 1928.

Björn var sonur Stígs Þorvaldssonar og Þórunnar Björnsdóttur sem bjuggu í Akrabyggð í N. Dakota en foreldrar Guðnýjar voru Friðrik Jóhannesson og seinni kona hans Ingibjörg Guðmundsdóttir. Björn var bílvirki og rak verkstæði og bifreiðaumboð í bænum Cavalier í Pembina sýslu. Þau hjón fluttu seinna til Kaliforníu.