Þórarinn Bjarnason

ID: 1512
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1924

Þórarinn Bjarnason fæddist 17. júní, 1849 í V. Skaftafellssýslu. Dáinn 21. febrúar, 1924 í Springville, í Utah.

Maki: 1) 28. júlí, 1872 Brynhildur Jónsdóttir f. 9. desember, 1849, d. 1885 2) Ingveldur Ingimundardóttir f. 15. ágúst, 1858, d. 11. apríl, 1956.

Börn: 1. Rannveig f. 1875 2. Jónína Guðrún f. 7. mars, 1877, d. 13. mars, 1959 3. Jóhannes Ágúst Einar f. 1879 4. Stefán f. 1879 5. Gunnar 6. Brynhildur

Þórarinn og Brynhildur fóru til Spanish Fork í Utah árið 1883 með þrjú börn þau Rannveigu, Gunnar og Brynhildi. Jóhanna Jónsdóttir, móðir Brynhildar, kom með hin barnabörnin sín þau Jónínu, Jóhannes og Stefán árið 1855. Þórarinn bjó nokkur ár í Spanish Fork en flutti með Ingveldi  í Castle Valley og seinna til Springville í Utah