ID: 19439
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1963

Björg Jónsdóttir og Jón Búason Mynd RbQ
Björg Jónsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 18. desember, 1879. Dáin í Vatnabyggð árið 1963.
Maki: 1900 Jón Búason f. í Ísafjarðarsýslu 12. febrúar, 1872. Dáinn í Saskatchewan 3. október, 1936. John Buason vestra.
Börn: 1. María Emily f. 8. september, 1901 2. Guðmundur Gunnar 3. Þorbjörg 4. Ingvar Bjarni 5. Þorlaug 6. Elísabet Halldís 7. Jónína Guðrún 8. Sesselja Rakel 9. Aðalheiður Ingibjörg
Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Búa Jónssyni og Þórlaugu Guðbrandsdóttur árið 1887 og fóru fyrst til Nýja Íslands. Þaðan fluttu þau í Selkirk og loks 1901 til Winnipegosis. Jón flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og nam land í Wynyardbyggð.
