ID: 5116
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1921
Halldóra Guðmundsdóttir fæddist 5. ágúst, 1854 í Snæfellsnessýslu. Dáin 28. október, 1921 í Duluth í Minnesota.
Maki: Siggeir Ólafsson f. 27. desember, 1850 í Staðarsveit í Snæfellsnessýslu, d. í Duluth 20. desember, 1915. Olson vestra.
Börn: 1. Anna Halldóra d 7 ára 2. Þorbjörg d. 11 ára 3. Þorgeir Finnbogi f. 27. september, 1879 4. Ólafur f. 8. október, 1883 5. Sveinn (?) eða Harry (?) f. 1. júní, 1892, d. í æsku 6.Franklín f. 31. maí, 1897.
Þau fluttu vestur til Winnipeg árið 1886 og bjuggu þar í þrjú ár. Fluttu þá til Wisconsin og dvöldu á Washingtoneyju stuttan tíma en fóru þaðan til Duluth í Minnesota. Þar bjuggu þau á jarðhæð í tveggja hæða húsi þar sem Halldóra vann ljósmóðurstörf og rak eigin stofu í mörg ár. Sjá Atvinna að neðan.
