ID: 5333
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla

Sigríður Jakobína Lárusdóttir Mynd VÍÆ II
Sigríður Jakobína Lárusdóttir fæddist 12. ágúst, 1876 í Húnavatnssýslu.
Maki: 29. júlí, 1909 Guðmundur Daníelsson fæddist í Gullbringusýslu 26. júní, 1878. Guðmundur D. Grímsson vestra.
Börn: 1. Anna Sigríður f. 16. júní, 1910 2. Jón Vilberg f. 15. október, 1917.
Guðmundur fór vestur með foreldrum sínum, Daníel Grímssyni og Sigríði Þorsteinsdóttur árið 1885. Þau bjuggu fyrst í Garðarbyggð en fluttu í Vatnabyggð árið 1905. Þar nam Guðmundur land skammt frá Mozart árið 1907. Sigríður var dóttir Lárusar Gunnarssonar og Önnu Helgadóttur. Anna fór ekkja vestur árið 1887 en Sigríður árið áður. Þær settust að í Garðarbyggð í N. Dakota.
