ID: 5481
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1911
Mildfríður Árnadóttir fæddist 1850 í Húnavatnssýslu. Dáin árið 1911 í Saskatchewan.
Maki: Friðrik Bjarnason fæddist í Húnavatnssýslu 3.júlí, 1851, d. 2.mars, 1930.
Börn: 1. Jakob 2. Hjörtur 3. Bjarni f. 20. júlí, 1881, d. 4. júlí, 1946 4. Elinborg 5. Sigurður 6. Árni Leví.
Friðrik og Mildfríður fóru á sama skipi vestur til Ontario í Kanada árið 1874. Bjuggu þar í Kinmount í eitt ár en fóru þaðan til Nýja Íslands árið 1875. Árið 1879 fluttu þá til N. Dakota og námu land í Pembinafjöllum. Þau fluttu þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1906 og settust að á landi sem Bjarni, sonur þeirra hafði valið árið áður. Það land var austan við Wynyard.
