Ingibjörg Jónsdóttir

ID: 5656
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1943

Ingibjörg Jónsdóttir Mynd RbQ

Ingibjörg Jónsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu árið 1873. Dáin árið 1943 í Vancouver. Ingibjörg Sanders og Eirikson vestra.

Maki: Magnús Jónsson, sonur Jóns Eiríkssonar hugsanlega þess er flutti úr Beruneshreppi árið 1879. Sá Magnús fæddist árið 1865. Dáinn árið 1902.

Börn: 1. Halldór 2. Solveig 3. Sadie 4. Karl (Charlie) 5. Laugi.

Ingibjörg flutti vestur með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni og Rannveigu Guðmundsdóttur, árið 1887, sem settust að í Selkirk. Þar kynntist Ingibjörg Magnúsi og þar hófu þau búskap. Eftir að Magnús féll frá flutti Ingibjörg með börn sín til föður síns í Vatnabyggð í Saskatchewan. Nam þar svo land árið 1908 en flutti ekki á það fyrr en 1912. Seinna flutti hún vestur að hafi til Lauga, sonar síns.