Málmfríður Hallgerður Jónsdóttir fæddist í Dalasýslu 13. september, 1873. Dáin í Manitoba 8. janúar, 1965.
Maki: 11. nóvember, 1890 Finnbogi Þorgilsson f. í Hnappadalssýslu árið 1866, d. 9. nóvember, 1831 í Lundarbyggð. Thorgilson vestra.
Börn: 1. Kristín d. 27. september, 1965 2. Óskar Jóhann f. 1896 3. Jón Hannes 4. Albert d. 11. júní, 1979 5. Ásta Evelyn f. 17. janúar, 1904 6. Þorgils Valdimar f. 28. janúar, 1906 7. Finnbogi Norman 8. Málmfríður Emilía 9. Bjarnrún Sigurlín.
Málmfríður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 með foreldrum sínum, Jóni Hannessyni og Ósk Þorleifsdóttur. Þau settust að í Vestfold í Manitoba. Finnbogi fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 með foreldrum sínum, Þorgils Árnasyni og Jóhönnu Narfadóttur og systkinum. Þau bjuggu í Winnipeg nokkur ár en fluttu því næst í Lundarbyggð og námu land í héraði sem kallað var Síbería. Þau yfirgáfu það land vegna flóða og fluttu nær Manitobavatni. Voru þar einhver ár en fóru þaðan til Winnipeg þar sem Finnbogi vann við smíðar með bræðrum sínum. Um aldamótin fóru þau aftur í Lundarbyggð og námu land nærri Vestfold.
