Sigmundur Sigurðsson

ID: 6185
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1944

Sigmundur Sigurðsson fæddist 23. október, 1869 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Blaine í Washington 10. október, 1944. Laxdal vestra.

Maki: 4. nóvember,1894 í Garðar: Sigríður Jónatansdóttir f. 28. febrúar, 1875, d. 15. mars, 1959.

Börn: 1. María Sigurbjörg f. 25. apríl, 1896 2. Sigurður Sveinbjörn f. 10. mars, 1899 3. Leó f. 3. nóvember, 1901 4. Þórhallur Helgi f. 30. desember, 1903 5. Sigurjón Franklín f. 3. ágúst, 1907 6. Moritz f. 15. mars, 1911.

Sigmundur fór vestur árið 1888 til N. Dakota með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Maríu Guðmundsdóttur. Sigríður fór sama ár frá Ísafirði. Þau bjuggu í Garðarbyggð til ársins 1940, fluttu þá vestur að Kyrrahafi og settust að í Blaine.