Ragnheiður Bjarnadóttir

ID: 6359
Fæðingarár : 1869
Dánarár : 1937

Ragnheiður Bjarnadóttir Mynd A Century Unfolds

 Ragnheiður Bjarnadóttir fæddist í Húnavatnssýslu 26. október, 1869. Dáin 20. október, 1937.

Maki: 1896 Ólafur Ólafsson f. í Húnavatnssýslu 26. október 1853. Dáinn 1906 í Manitoba. Skrifaður Johnson vestra.

Börn: 1. Sigurlaug Soffía (Sella) f. 20. júní, 1897 2. Hólmfríður f. 6. janúar, 1899 3. Guðrún f. 1900 4. Kjartan Sveinn f. 25.júní, 1902 5. Bjarni f. 31.maí, 1903 6. Óli Ragnar 31.janúar, 1906 7. Magnea Sigurey f. 9.maí, 1907

Fluttu vestur 1900 og fóru fyrst til Pembina í Norður Dakota. Fluttu fljótlega þaðan til Nýja Íslands og tóku land vestarlega í Framnes – og Árdalsbyggð. Þar lést Ólafur eftir fáein ár. Ragnheiður seldi mestan hluta landsins járnbrautarfélaginu C.P.R. og átti eftir það auðveldara með að ala upp stóran barnahóp.