
Guðjón Bergur Guðmundsson Mynd VÍÆ IV
Guðjón Bergur Aðalsteinn Guðmundsson fæddist í Önundarfirði í Ísafjarðarsýslu 26. nóvember, 1890. George Brown vestra.
Maki: 25. ágúst, 1911 Ólafía Barbara Sveinbjarnardóttir f. í Winnipeg 2. desember, 1890, d. 23. mars, 1966.
Börn: 1. Evelyn f. í Winnipeg 30. september, 1914. Önnur þrjú börn þeirra dóu í æsku.
Guðjón bjó fyrst með föður sínum og fjölskyldu hans í Brandon, flutti svo þaðan árið 1899 til Winnipegosis. Seinna flutti hann til Winnipeg og bjó þar 1906 til 1911 en þá lá leið hans til Saskatchewan, bjó fyrst í Bradenbury og svo í Wynyard. Árið 1924 flytur fjölskyldan vestur að Kyrrahafi og bjó hún í Seattle til ársins 1936 en þá lá leiðin til Kaliforniu. Ólafía var dóttir Sveinbjarnar Loftssonar og Steinunnar Ásmundsdóttur sem vestur fluttu úr Dalasýslu til Winnipeg árið 1887.
