Helga Jónasdóttir

ID: 19976
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1906
Fæðingarstaður : Manitoba
Dánarár : 1949

Helga Jónasdóttir fæddist 1. nóvember, 1906 í Winnipeg. Dáin 21. janúar, 1949.

Maki: 1) Skarphéðinn Kjartan Gunnarsson fæddist 12. nóvember, 1902 í Winnipegosis. Dáinn í Englandi 26. júní, 1945. Tighe vestra. 2) September, 1946 Arnold Fredin frá Ontario.

Börn: Með fyrri manni: 1. Barbara Helga f. í Vancouver 29. júní, 1926 2. Stearne Skarphéðinn f. í Kaliforníu 23. júlí, 1927 3. Brian Baldwin f. í Kaliforníu 9. júní, 1929.

Helga var dóttir Jónasar Pálssonar tónlistarkennara og Emily Helgu Baldvinsdóttur. Helga lærði tónlist og vann til verðlauna fyrir hæfileika sína t.d. heiðurspening úr gulli og námstyrk í Toronto árið 1922.  Hún var tónlistarkennari. Skarhéðinn var sonur Gunnars Friðrikssonar og Guðrúnar Helgu Jörundsdóttur í Winnipegosis í Manitoba. Hann var tekinn í fóstur af Björgu Tighe, móðursystur sinni og hennar manni. Stjúpi hans, Stearne Tighe vann hjá járnbrautarfélagi í Manitoba og Saskatchewan og það eflaust varð til þess að Skarphéðinn réðst til Canada Northern járnbrautarfélagsins. Hann særðist í Seinni heimstyrjóldinni og dó í Englandi.