Sigmundur Sigmundsson
Sæmundur Sæmundsson
Arnfríður Ásmundsdóttir
Ágústa Magnúsdóttir
Magnús Einarsson
Magnús Einarsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 1862. Skráður Grandy vestra. Dáinn í Washingtonríki 28. maí, 1943 Maki: 1892 Margrét Jónsdóttir f. í Vestmannaeyjum 3. október, árið 1862, d. 12. september, 1942. Börn: 1. Kristinn Aðalsteinn 2. Jóhanna Margrét Lilja. Magnús fór með móður sinni, Ágústu Magnúsdóttur og bróður vestur árið 1883 og vann við sitthvað í Manitoba og N. Dakota. …
Einar Einarsson
Einar Einarsson fæddist árið 1866 í S. Þingeyjarsýslu. Ættarnafnið Grandy vestra. Dáinn í Seattle árið 1937. Maki: Katrín Sigurðardóttir f. í N. Múlasýslu árið 1860. Börn: 1. Anna 2. Arngrímur 3. Stefán Sigurður 4. Kristbjörg 5. Einar. Einar fór vestur árið 1883 til Winnipeg í Manitoba með móður sinni, ekkjunni Ágústu Magnúsdóttur og bróður sínum, Magnúsi. Einar fór sama ár suður …
Hannes Björnsson
Hannes Guðmundur Björnsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1863. Ókvæntur og barnlaus. Hann flutti vestur árið 1900 og mun hafa sest að í Akrabyggð í N. Dakota. Móðir hans, Valgerður Kristjánsdóttir mun hafa komið þangað til hans, hún dó í byggðinni árið 1912.
