Josephine T Kristjánsdóttir
Josephine Thorbjörg Kristjánsdóttir fæddist í Manitoba 10. desember, 1897. Jósefína Þorbjörg meðal Íslendinga. Maki: Jón Pálsson f. vestra. Börn: 1. Paul 2. Jónína Margrét 3. Albert. Jósefína var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergvinsdóttur í Argylebyggð í Manitoba. Jón var sonur Páls Friðfinnssonar er vestur flutti úr S. Múlasýslu árið 1876, með foreldrum sínum, Friðfinni Jónssyni og Halldóru Pálsdóttur.
Björn Jónsson
Björn Kristjánsson fæddist í Manitoba 13. mars, 1898. Björn K. Jónsson vestra. Maki: Clara Josephine Málfríður Hólmkelsdóttir f. í Argylebyggð. Börn: 1. Claire 2. Theodore 3. Marlyn 4. Delphine. Björn var sonur Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergvinsdóttur í Glenboro. Kristján tók föðurnafn afa síns, Björns Jónssonar. Björn og Clara voru bændur í Argylebyggð.
Sigrún M Kristjánsdóttir
Sigrún Margrét Kristjánsdóttir fæddist í Manitoba 2. mars, 1899. Sigrún M Sigurðsson í hjónabandi. Maki: Ellis Geirfinnur Sigurðsson málari í Argylebyggð. Börn: 1. Ledrew. Sigrún var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro.
Jónína V Kristjánsdóttir
Jónína Valgerður Kristjánsdóttir fæddist 16. október, 1900 í Manitoba. Dáin 22. apríl, 1942 í Glenboro. Jónína V Sampson í hjónabandi. Maki: J. Dolph Sampson. Börn: 1. Jone 2. Wilbur 3. Kenneth 4. Garth 5. Guelda. Jónína var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro.
Lilja Kristjánsdóttir
Lilja Kristjánsdóttir fæddist í Manitoba 6. júlí, 1903. Lilja Mathews í hjónabandi. Maki: Vigfús P Mathews í Winnipeg. Börn: 1. Clarence 2. Yvonne. Lilja var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar bergsveinsdóttur í Glenboro.
Anna Kristjánsdóttir
Anna Kristjánsdóttir fæddist á Brú í Argylebyggð 7. október, 1904. Maki: 14. desember, 1925 Reginald Williams f. 1. október, 1897, d. 1. ágúst, 1957. Börn: 1. Laura f. 6. júlí, 1926 2. Bryan 3. Ivan 4. Phyllis f. 18. október, 1933 5. Lorne f. 19. júní, 1930. Anna var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro. Anna og fjölskylda …
Jón K Jónsson
Jón Kristján Jónsson fæddist 8. febrúar, 1905 í Manitoba. Faðir hans tók föðurnafnið Jónsson og gerði Jón Kristján hið sama. Maki: Guðrún Ingibjörg Magnúsdóttir. Börn: 1. Linda. Jón var sonur Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro. Foreldrar Guðrúnar voru Magnús Nordal og Guðný Jakobína Guðnadóttir í Winnipeg.
Hermann S Jónsson
Hermann Skafti Kristjánsson fæddist í Manitoba 3. maí, 1906. Hermann skrifaði sig Jónsson Vestra líkt og faðir hans og bræður. Maki: Hallfríður Andrésdóttir. Börn: Jeanette 2. Carry 3. Douglas. Hermann var sonur Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro. Faðir Hallfríðar var Andrés Helgason , sem flutti úr Eyjafjarðarsýslu árið 1888 og settist að í Winnipeg.
Pálína Kristjánsdóttir
Pálína Kristjánsdóttir fæddist í Manitoba 19. júní, 1908. Maki: Henry Loewen Börn: Keith 2. Doloret. Pálína var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Glenboro. Hún var tekin í fóstur af Jóni B Jónssyni í Kandahar í Saskatchewan og konu hans, Stefaníu Stefánsdóttur, sem ættuð var frá Ljósavatni.
