Helga Sigurbjörg Kristjánsdóttir fæddist í Argylebyggð í Manitoba 10. ágúst, 1896. Maki: Alex Munro Börn: 1. Kristin Thordis. Helga var dóttir Kristjáns Björnssonar og Þórdísar Bergsveinsdóttur í Argylebyggð.
Hólmfríður M Jónasdóttir
Allan V Jones
Allan Valdimar Jones fæddist 3. mars,1911 í Mikley í Nýja Íslandi. Dáinn 14. nóvember, 1939 Maki: 15. ágúst, 1936 Lovísa Jórunn Stefánsdóttir fædd í Selkirk. Börn: 1. Stefán 2. Thorbergur Gerald Allan var sonur Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Allan var vélstjóri á gufubátum á Winnipegvatni.
Helgi Jones
Helgi Jones fæddist í Mikley 10. janúar, 1930. Dáinn á barnsaldri. Hann var sonur Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley.
Magnúsína Jones
Magnúsína Jones fæddist í Mikley í Nýja Íslandi 1. júlí, 1914 Ógift og barnlaus. Hún var dóttir Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Hún var kennari og kenndi á nokkrum stöðum í Nýja Íslandi. Flutti til Winnipeg þar sem hún vann á skrifstofu fylkisstjórnar. Endaði sinn starfsferil sem skrifstofustjóri hjá Food & Drug Department, Kanadastjórnar.
Helgi Jones
Helgi Jones fæddist í Mikley í Nýja Íslandi 25. september, 1916. Maki: 21. mars, 1942 Frances Hurst. Börn: 1. Patricia 2. Allan Walter 3. Marjorie 4. Helgi Stewart 5. Murry Royae. Helgi var sonur Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Helgi stundaði fiskveiðar á veturna en rak svo sumarhótel á Gold Harbour í eynni á sumrin.
Brynjólfur Jones
Brynjólfur Jones fæddist á Sandnesi í Mikley 10. febrúar, 1918. Drukknaði í Winnipegvatni 5. maí, 1960. Maki: 21. mars, 1942 Sigríður Kristjana Lorraine f. í Mikley. Börn: 1. Sigurður Brynjólfur 2. Wendy Lorraine 3. Wanda Lorella 4. Vigdís Anna 5. Bonnie Lee 6. Þorbergur Craig. Foreldrar Brynjólfs voru Þorbergur Brynjólfsson og Anna Sigríður Helgadóttir í Mikley. Brynjólfur stundaði fiskveiðar í …
Ingibjörg A Jones
Ingibjörg Aðalheiður Jones fæddist 30. apríl, 1920 í Mikley. Webb í hjónabandi. Maki: 31. mars, 1945 Marshell Donald Webb, af enskum ættum. Börn: 1. Allan Marshell 2. Brian Keith 3. Jonis Asleigh. Ingibjörg var dóttir Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Þar lauk hún miðskólanámi, flutti til Winnipeg og stundaði frekara nám í United College. Vann svo þar …
Einarína V Jones
Einarína Valgerður Jones f. 14. nóvember 1921 í Mikley. Ógift og barnlaus. Hún var dóttir Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Hún lærði hraðritun að loknu grunnskóla- námi í Winnipeg og vann við það í borginni í nokkur ár. Flutti seinna til Los Angeles í Kaliforníu og vann hjá verslunarfélagi.
Thorbergur I Jones
Thorbergur Ingólfur Jones fæddist í Mikley 21. september, 1925. Ókvkntur og barnlaus. Hann var sonur Þorbergs Brynjólfssonar og Önnu Sigríðar Helgadóttur í Mikley. Þar bjó hann alla tíð var fiskimaður og fisksali.
