Albert Bergsteinsson fæddist 1906 í Saskatchewan, dó í vöggu. Albert var sonur Hjartar Bergsteinssonar og Þórunnar G Þorsteinsdóttur er lengi bjuggu í Saskatchewan.
Margaret V Bergsteinsson
Margaret Valentine Bergsteinsson fæddist í Alameda í Saskatchewan 14. febrúar, 1908. Ógift og barnlaus. Hún lærði matarefnafræði (dietician) í háskólanum í Winnipeg í Manitoba og lauk þaðan prófi árið 1935. Varð svo kennari í Ryerson Institute of Technology í Toronto.
Mabel A Bergsteinsson
Mabel A Bergsteinsson fæddist í Saskatchewan 31. desember, 1910. Ógift og barnlaus. Hún var dóttir Bjartar Bergsteinssonar og Þórunnar G Þorsteinsdóttur í Saskatchewan. Hún varð kennari í Craik.
Thorunn Bergsteinsson
Thorunn Bergsteinsson fæddist í Saskatchewan 9. október, 1912. Maki: Arnold Jensen f. í Kaupmannahöfn. Börn eru tvö, upplýsingar um þau vantar. Thorunn var dóttir Hjartar Bergsteinssonar og Þórunnar G Þórsteinsdóttur í Saskatchewan. Hún og maður hennar ráku veitingastað í Alameda í Saskatchewan.
Albert Bergsteinsson
Albert Bergsteinsson fæddist 1. október, 1915 í Saskatchewan. Dáinn þar árið 1919. Foreldrar hans voru Hjörtur Bergsteinsson og Þórunn G Þorsteinsdóttir, sem lengi bjuggu í Saskatchewan.
Dómhildur H Westman
Olive S Ólafsdóttir
Olive Sophania Ólafsdóttir fæddist í Alberta 19. apríl, 1892. Maki: 13. ágúst, 1917 W. Roy Woods, enskur uppruni. Börn: Þau tóku þrjár stúlkur í fóstur 1. Ruth Naomi f. 4. október, 1912 2. Mildred Cornell f. 5. desember, 1919 3. Verl Viola Cornell f. 28. nóvember, 1922. Olive var dóttir Ólafs Guðmundssonar og Konkordíu Sófíasdóttur, landnemar í byggðinni nærri Markerville …
Sigurður B Wopnfjörd
Sigurður Jónsson
Margrét Gísladóttir
Margrét Gísladóttir fæddist í Snæfellsnessýslu 13. janúar, 1873. Dáin í N. Dakota 15. mars, 1955. Maki: Sigurður Jónsson fæddur í Rangárvallasýslu 25. desember, 1861, d. 16. október, 1931 í N. Dakota. Börn: 1. Sigríður Helga f. í Bantry, N.Dakota 22. september, 1902. Þau fluttu vestur árið 1901 og settust að í Bantry í N. Dakota.
