Arthur Bjarnason

ID: 20236
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1899
Dánarár : 1972

Arthur og Kristjana Bjarnason Mynd VÍÆ V

Arthur Bjarnason fæddist 4. desember, 1899 í Winnipeg. Dáinn 19, mars, 1972 í Vatnabyggð.

Maki: 14. nóvember, 1934 Kristjana Þorsteinsdóttir fæddist 22. maí, 1906 í Winnipeg. Kristjana Bjarnason vestra.

Börn: 1. Arlan Roy f. 30. júní, 1942.

Arthur var sonur Júlíusar Bjarnasonar og Sigurjónu Helgu Sigurðardóttur sem fluttu til Wynyard í Vatnabyggð árið 1911. Þar bjó Arthur alla tíð, var bóndi á eigin landi nærri Wynyard. Kristjana var dóttir Þorsteins Jónssonar frá Lundarbrekku í Bárðardal og Áslaugar Jónsdóttur frá Mýri. Þau fluttu frá Winnipeg í Vatnabyggð árið 1914 og þar elst Kristjana upp, gengur þar í skóla og verður fyrsta hárgreiðslukonan í Wynyard.