ID: 20251
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1920

Guðrún Irene Thorlacius Mynd VÍÆ V
Guðrún Irene Thorlacius fæddist 9. desember, 1920 í Vatnabyggð í Saskatchewan.
Maki: 16. nóvember, 1939 Christopher Dalmann f. 1. júní, 1914 í Kandahar í Saskatchewan.
Börn: 1. Peter Christie f. 25. október, 1941 2. Carole Maureen f. 13. desember, 1945 3. Roxanne Margaret f. 26. febrúar, 1953 4. Wanda Lee f. 1. apríl, 1958.
Christopher var sonur Jóhanns Björnssonar Dalmann og Guðrúnar Þóru Jakobsdóttur sem vestur fluttu árið 1913. Christopher ólst upp í Vatnabyggðinni og fór ungur að vinna fyrir sér hjá bændum. Guðrún var dóttir Péturs Hallgríms Thorlacius og Guðrúnar Margrétar Jónsdóttur. Pétur var fæddur í Garðar í N. Dakota en Guðrún Margrét fæddist á Íslandi.