Ingibjörg J Jónsdóttir

ID: 20373
Fæðingarár : 1905

Ingibjörg Jónína Jónsdóttir Mynd VÍÆ I

Ingibjörg Jónína Jónsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu 14. maí, 1905. Kárdal vestra.

Maki: 29. ágúst, 1926 Magnús Einarsson f. 28. mars, 1895 í Nýja Íslandi, d. þar 13. ágúst, 1959.

Barnlaus.

Foreldrar Ingibjargar voru Jón Konráðsson frá Kárdalstungu í Húnavatnssýslu og Guðfinna Kristín Þorsteinsdóttir sem vestur fluttu árið 1823. Þau tóku nafnið Kárdal vestra. Magnús var sonur Einars Guðmundssonar og Margrétar Sigurðardóttur land nema í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Hann ólst upp í Nýja Íslandi og bjó þar í Árnesbyggð. Hann stundaði fiskveiðar og var með búskap. Þau hjón tóku mikinn þátt í samfélagsmálum, Magnús var rúm tuttugu ár í skólaráði byggðarinnar og Jónína gjaldkeri lútherska safnaðarins í mörg ár og forseti kvenfélagsins í byggðinni.