Aðalbjörg Ágústsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 18. október, 1890. Vopni vestra.
Maki: 1914 Magnús Jóhannesson f. í Winnipeg árið 1887, d. í Vatnabyggð árið 1947. Magnus Gillis vestra.
Börn: 1. Magnús Roy f. 1916 2. Bertel Valdimar f. 1921 3. Edwin f. 20. janúar, 1924 4. Maríus Leonard f. 1927, d. sama ár.
Aðalbjörg var dóttir Jakobs Ágústs Jónssonar Vopna og Arnbjargar Jónsdóttur frá Vopnafirði sem vestur fluttu til Winnipeg árið 1892. Aðalbjörg fór þangað ári seinna með afa sínum og ömmu. Hún flutti með foreldrum sínum til Swan River þar sem þeir námu land. Að loknu námi flutti hún til Winnipeg og þar lágu leiðir hennar og Magnúsar saman. Foreldrar Magnúsar, Jóhannes Gíslason og Valgerður Stefánsdóttir fluttu vestur til Winnipeg árið 1887. Hann flutti með þeim til Duluth í Minnesota árið 1892 og þaðan vorið 1902 í Garðarbyggð í N. Dakota. Þegar skólagöngu Magnúsar lauk vann hann við skógarhögg í Ontario en árið 1906 nam hann land í Vatnabyggð í Saskatchewan nærri Wynyard. Ekkert varð úr búskap þar heldur keypti hann annað land í byggðinni nokkrum árum síðar,byggði þar hús og þangað fluttu þau með Magnús litla árið 1917. Aðalbjörg bjó þar alla tíð.
