ID: 10648
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1924
Aðalbjörg Bjarnadóttir fæddist í N. Múlasýslu 1. júlí, 1854. Dáin 20. janúar, 1924 í Garðarbyggð.
Maki: Tryggvi Kristjánsson f. árið 1856 í N. Þingeyjarsýslu, d. í N. Dakota árið 1922.
Börn: 1. Rósa f. 1880 2. Kristján f. 1886, d. 1905 í N. Dakota. Tveir synir þeirra dóu á Íslandi.
Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1889 og voru foreldrar Tryggva, Kristján Jónsson og Guðrún Jónsdóttir þeim samferða. Tryggvi og Aðalbjörg bjuggu fyrst í Cashel, fluttu þaðan til Grafton og loks í Garðarbyggð. Stunduðu lengi búskap en fluttu seinna í þorpið Garðar.
