ID: 8687
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Aðalbjörg Jóhannesdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1873.
Maki: Sigurður Sigurðsson frá Vopnafirði.
Börn: 1. Fanney 2. Rósa 3. Daisy 4. Dóra
Aðalbjörg fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 með fóstra sínum Páli Gunnarssyni og konu hans. Foreldrar hennar og systkini fóru vestur þangað árið 1883.
Sigurður og Aðalbjörg settust að í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land í Foam Lake byggð. Hann keypti þar annað land og bjó vel. Keyptu hús í þorpinu og leigðu öðrum lönd sín.
