
Sitjandi: Magný, Ragnheiður, Ágúst og Jóhann. Standandi: Ágústa, Agnar, Kristberg og Alexandra. Mynd WtW

Agnar lærði mannganginn hjá föður sínum ungur og varð bæði skákmeistari Winnipeg og Manitoba. Mynd WtW
Ágúst Magnússon fæddist 25. október, 1863 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Lundarbyggð 24. febrúar, 1953. August Magnusson vestra.
Maki: 5. febrúar, 1898 Ragnheiður Jóhannsdóttir Straumfjörð f. í Mikley 5. febrúar,1878.
Börn: 1. Agnar Rae f. 2. júní, 1900 2. Jóhann Magnús f. 15. júní, 1905 3. Kristberg Margeir f. 18. maí, 1910. Þau tóku í fóstur Alexöndru, Magný og Ágústu en þær voru dætur Rósu sem dó frá þeim ungum.
Ágúst flutti vestur til Kanada árið 1887. Hann og Bergmann Þorbergsson úr Árnessýslu fengu vinnu við komuna til Quebec hjá Hudson Bay félaginu við vöruflutninga norðarlega í fylkinu. Hann vann þar í tvö ár en flutti svo vestur á bóginn til Brandon í Manitoba en þar voru þá komnir foreldrar hans, Magnús Mágnússon og Margrét Jónsdóttir svo og Guðmundur bróðir hans og systurnar Rósa og Guðrún. Þaðan flutti svo fjölskyldan norður í Ísafoldarbyggð í Nýja Íslandi. Þau bjuggu um hríð í Mikley og starfaði Ágúst þar sem vitavörður en árið 1903 fluttu Ágúst og Ragnheiður á eigið land í Lundarbyggð.
