ID: 4162
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Dánarár : 1944
Anna Guðrún Kristjánsdóttir fæddist 21. júní, 1853 í Strandasýslu. Dáin 1. maí, 1944 á Betel á Gimli.
Maki: Benedikt Jónsson f. 17. nóvember, 1862 í Dalasýslu, d. 20. apríl, 1917 í Wynyard í Saskatchewan.
Börn: 1. Jón f. 1887.
Þau fóru vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og fylgdu ættmennum í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Þaðan lá leið þeirra til baka til Winnipeg og þaðan til Hallson og Garðar í N. Dakota. Árið 1912 fluttu þau vestur í Vatnabyggð og keyptu land nærri Wynyard. Seldu það seinna og fluttu til Wynyard og bjuggu þar.
