Anna Margrét Þorsteinsdóttir fæddist 26. maí, 1849 í S. Múlasýslu. Dáin í Leslie í Vatnabyggð 13. febrúar, 1939.
Ekkja.
Börn: 1. Anna Sigríður f. 1877 2. Jóna f. 1878 3. Þorsteinn f. 1884 4. Páll f. 26. júní, 1887 5. Björgvin f. 1891.
Anna missti mann sinn, Guðmund Jónsson, bónda á Rjúpnafelli í Vopnafirði 7. janúar, 1908. Anna og Jóna fóru vestur um haf árið 1903 og Þorsteinn árið 1905. Hann sneri aftur til Íslands árið 1908, hefur eflaust frétt af láti föður síns. Trúlega hefur Þorsteinn átt sinn þátt í ákvörðun Önnu Margrétar að flytja til Vesturheims árið 1911, þá rúmlega sextug. Með henni fóru synirnir þrír, Þorsteinn, Páll og Björgvin. Fjölskyldan bjó fyrstu árin í Winnipeg en 1915 fóru Þorsteinn og Páll til Vatnabyggða í Saskatchewan þar sem þeir gerðust bændur. Anna Margrét fót með þeim og sá um heimili fyrir Pál, hann var alla tíð ókvæntur.
