
Anne M Sigmar Mynd VÍÆ II
Anne Margrethe Thorlákss0n fæddist í Minneota, Minnesota 2. desember, 1891.
Maki: 25. júní, 1914 Haraldur Sigmarsson fæddist í Argylebyggð í Manitoba 20. október, 1885, d. 29. október, 1963. Rev. Haraldur S Sigmar vestra.
Börn: 1. Harald Steingrímur f. 30. mars, 1917 2. Eric Halfdan f. 12. júní, 1922 3. Margaret Sigrún f. 4. ágúst, 1924 4. Georg Octavius f. 14. mars, 1926.
Foreldrar Anne voru séra Níels Steingrímur Thorláksson, prestur í Minneota í Minnesota og Selkirk í Manitoba. Móðir Anne var Erika Christofa fædd í Noregi. Haraldur var sonur Sigmars Sigurjónssonar og Guðrúnar Kristjánsdóttur sem vestur fluttu árið 1883. Snemma var ljóst að Haraldur vildi menntast og hóf hann nám í Wesley College í Winnipeg árið 1901 og varð prestur.