Árni Einarsson

ID: 1922
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1948

Friðgeir, Árni, Kristín og Albert. Fyrir aftan standa Helga Lilja og Hólmfríður Mynd WtW

Bjálkahús Árna Einarssonar byggt í Lundarbyggð árið 1900. Mynd WtW

Árni Einarsson fæddist í Snæfellsnessýslu 4. apríl, 1862. Dáinn 13. desember, 1948 í Lundarbyggð.

Maki: 1896 Kristín Magnúsdóttir f. 20. september, 1868, d. 26. febrúar, 1929.

Börn: 1. Helga Lilja f. 1897 2. Hólmfríður Salóme f. 1898 3. Albert f. 3. september, 1900 4. Friðgeir f. 1903.

Árni fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Vann þar  járnbrautarvinnu fyrst um sinn en þegar bróðir hans Einar og móðir þeirra, Elinborg Jóhannsdóttir komu vestur fluttu þau til Pilot Mound, suðvestur af Winnipeg. Kristín fór vestur þangað árið 1894. Kristín og Árni ákváðu að fytja í Lundarbyggð árið 1899 og þar bjuggu þau síðan.