Árni Friðriksson

ID: 8310
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1934

Árni Friðriksson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1852. Dáinn í Vancouver 1. ágúst, 1934. Arni Frederickson vestra.

Maki: Sigurbjörg Þorláksdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 14. ágúst, 1861, d. 2. apríl, 1941.

Börn: 1. Walter Ágúst (August) f. 1885, d. 1967 2. Lára (Laura) f. 1889, d. 1968 3. Friðrik (Frederick) Victor f. 1893, d. 1929 4. Anna (Annie) Sarah f. 1899, d. 1987.

Hann flutti vestur til Toronto í Ontario árið 1873. Vann þar í borg til ársins 1875 en flutti þá vestur til Winnipeg. Bjó í Manitoba en flutti seinna vestur til Vancouver. Árni var bróðir Friðjóns Friðrikssonar og stundaði kaupmennsku líkt og hann. Flutti vestur að Kyrrahafi og bjó í Vancouver. Sigurbjörg fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 með foreldrum sínum, Þorláki Björnssyni og Þórdísi Árnadóttur. Þau settust að í N. Dakota.